Fréttir


  • Hluti úr aðalskipulagsuppdrætti Rangarþings eystra

26.6.2020

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Rangárþings eystra vegna Hamars í Austur-Landeyjum

Skipulagsstofnun staðfesti, 26. júní 2020, breytingu á Aðalskipulagi Rangárþings eystra 2012-2024 sem samþykkt var í sveitarstjórn 14. maí 2020.

Í breytingunni felst að 2 ha landbúnaðarsvæði í landi Hamars verður breytt í verslun og þjónustu (VÞ240). Gert er ráð fyrir sjö gistiskálum fyrir allt að 25 gesti auk aðstöðuhúss.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.