Fréttir


  • Úr aðalskipulagsuppdrætti Rangárþings eystra

11.6.2020

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Rangárþings eystra vegna Kirkjuhvolsreits á Hvolsvelli

Skipulagsstofnun staðfesti 10. júní 2020 breytingu á Aðalskipulagi Rangárþings eytra 2012-2024 sem samþykkt var í sveitarstjórn 14. maí 2020.

Í breytingunni felst að svæði fyrir samfélagsþjónustu, Kirkjuhvolsreitur S-116, er stækkað um 0,8 ha vegna áformaðrar stækkunar heilsugæslustöðvar, hjúkrunar- og dvalarheimilis og byggingar íbúða fyrir 60 ára og eldri. Samhliða minnkar íbúðarsvæði ÍB-114 og landbúnaðarsvæði.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.