Fréttir


  • Uppdráttur eftir breytingu

9.3.2016

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Rangárþings ytra, Múla, frístundasvæði

Skipulagsstofnun staðfesti þann 16. febrúar 2016 breytingu á Aðalskipulagi Rangárþings ytra 2010-2022, sem samþykkt var í sveitarstjórn 13. janúar 2016.

Um 13 ha svæði úr landi Múla er breytt úr landbúnaðarsvæði í frístundabyggð, F77. Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.

Hægt er nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar.