Fréttir


  • Kappakstur

13.1.2022

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Rangárþings ytra vegna akstursíþróttasvæðis við Gunnarsholtsveg

Skipulagsstofnun staðfesti, 12. janúar 2022, breytingu á Aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028 sem samþykkt var í sveitarstjórn 11. nóvember 2021.

Í breytingunni felst að 25 ha landi úr skógræktunar- og landgræðslusvæði SL1 við Gunnarsholtsveg er breytt í akstursíþróttasvæði ÍÞ6.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.