Fréttir


20.5.2022

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Rangárþings ytra vegna Borgarbraut 4, Þykkvabæ

Skipulagsstofnun staðfesti, 20. maí 2022, breytingu á Aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028 sem samþykkt var í sveitarstjórn 14. október 2021.

Í breytingunni felst að Borgarbraut 4, Þykkvabæ, er breytt út íbúðabyggð ÍB15 í verslunar- og þjónustusvæði VÞ35.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.