Fréttir


  • Svínhagi 2

6.5.2020

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Rangárþings ytra vegna Svínhaga

Skipulagsstofnun staðfesti 4. maí 2020 breytingu á Aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028 sem samþykkt var í sveitarstjórn 12. mars 2020.

Í breytingunni felst að svæði fyrir verslun- og þjónustu, Svínhagi VÞ28, er stækkað úr 3 ha í um 7 ha og heimild fyrir gistipláss er aukin úr 25 í 50 í allt að 12 gestahúsum.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.