Fréttir


  • Þjóðólfshagi

7.12.2020

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Rangárþings ytra vegna Þjóðólfshaga

Skipulagsstofnun staðfesti 3. desember 2020 breytingu á Aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028 sem samþykkt var í sveitarstjórn 12. nóvember 2020.

Í breytingunni felst að um 10 ha frístundabyggð er breytt í íbúðarbyggð fyrir níu íbúðarlóðir.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.