Fréttir


  • Tengivirki, Njarðvíkurheiði

25.2.2022

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Reykjanesbæjar vegna tengivirkis á Njarðvíkurheiði

Skipulagsstofnun staðfesti 24. febrúar 2022 óverulega breytingu á Aðalskipulagi Reykjanesbæjar 2015-2030 sem samþykkt var í bæjarstjórn 21. desember 2021.

Í breytingunni felst að iðnaðarsvæði I4 fyrir tengivirki á Njarðvíkurheiði er fært lítillega til suðurs vegna jarðsprungu.

Málsmeðferð var óveruleg breyting á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.