Fréttir


12.11.2018

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur vegna afmörkunar svæða við Vesturhlíð, Völvufell 7a og Vogabyggð I

Skipulagsstofnun staðfesti, 9. nóvember 2018, breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030 sem samþykkt var í borgarráði 6. september 2018.

Í breytingunni felst lagfæring á afmörkun þriggja landnotkunarsvæða til samræmis við lóðamörk og notkun lóða við Vesturhlíð, Völvufell 7a og í Vogabyggð I.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.