Fréttir


31.7.2024

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur vegna skotíþróttasvæðis á Álfsnesi

Skipulagsstofnun staðfesti 26. júlí 2024 breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2040 sem samþykkt var í borgarráði 11. júní 2024.

Í breytingunni felst skilgreining á íþróttasvæði ÍÞ9 á Álfsnesi og iðnaðarsvæðis I2 og opins svæðis OP28 sem minnka sem því nemur.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.