Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur við Álfsnesvík
Skipulagsstofnun staðfesti, 28. maí 2020 breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030 sem samþykkt var í borgarráði 2. apríl 2020.
Í breytingunni felst að við Álfsnesvík er skilgreint nýtt 10,6 ha iðnaðarsvæði fyrir efnisvinnslu.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.