Fréttir


  • Hrífunes, Skaftárhreppur

24.2.2022

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Skaftárhrepps vegna Hrífuness, stækkun verslunar og þjónustusvæðis

Skipulagsstofnun staðfesti, 24. febrúar 2022, breytingu á Aðalskipulagi Skaftárhrepps 2010-2022 sem samþykkt var í sveitarstjórn 22. mars 2021.

Í breytingunni felst að verslunar- og þjónustusvæðið V2 að Hrífunesi stækkar og tekur yfir hluta af af frístundabyggðinni F3 sem minnkar sem því nemur.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.