Fréttir


21.7.2022

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps vegna afþreyingar- og ferðamannasvæðis við Stóru-Laxá (AF4)

Skipulagsstofnun staðfesti, 20. júlí 2022, óverulega breytingu á Aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2017-2029 sem samþykkt var í sveitarstjórn 15. júní 2022.

Í breytingunni felst leiðrétting á skráningu afþreyingar- og ferðamannasvæða AF2 og AF4 þar sem auðkenni svæðanna er víxlað en jafnframt er gistirýmum á svæði AF4 við Stóru-Laxá fjölgað úr 10 í 25.

Málsmeðferð var óveruleg breyting á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.