Fréttir


24.1.2019

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Skútustaðahrepps vegna afþreyingar- og ferðmannasvæða við Vogagjá, Lúdent og Hvannfell

Skipulagsstofnun staðfesti, 23. janúar 2019, breytingu á Aðalskipulagi Skútustaðahrepps 2011-2023 sem samþykkt var í sveitarstjórn 24. október 2018.

Í breytingunni felst að skilgreina 0,2 ha afþreyingar- og ferðmannasvæði við Vogagjá, Lúdent og austan Hvannfells. Á svæðunum er gert ráð fyrir bílastæðum og salernisaðstöðu fyrir ferðamenn.

Málsmeðferð var óveruleg breyting á aðalskipulagi, sbr. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.