Fréttir


  • Vogar 1, Mýtvatnssveit

30.9.2020

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Skútustaðahrepps vegna Voga 1

Skipulagsstofnun staðfesti 30. september 2020 breytingu á Aðalskipulagi Skútustaðahrepps 2011-2023 sem samþykkt var í sveitarstjórn 27. maí 2020.

Í breytingunni felst að hluta af frístundabyggð í landi Voga 1 er breytt í landbúnaðarsvæði.

Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.