Fréttir


3.1.2019

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Strandabyggðar vegna athafnasvæðis við Fiskislóð

Skipulagsstofnun staðfesti 3. janúar 2019 breytingu á Aðalskipulagi Strandabyggðar 2010-2022 sem samþykkt var í sveitarstjórn 11. september 2018.

Í breytingunni felst að 0,1 ha af svæði fyrir verslun og þjónustu við Fiskislóð er breytt í athafnasvæði A8 þar sem gert er ráð fyrir þjónustu fyrir bifreiðar og báta.

Málsmeðferð var óveruleg breyting á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.