Fréttir


  • Helgafell

18.11.2020

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Svalbarðsstrandarhrepps vegna Helgafells, nýtt verslunar og þjónustusvæði

Skipulagsstofnun staðfesti, 16. nóvember 2020, breytingu á Aðalskipulagi Svalbarðsstrandarhrepps 2008-2020 sem samþykkt var í sveitarstjórn 11. ágúst 2020.

Í breytingunni felst að 2,3 ha landbúnaðarsvæði er breytt í verslun og þjónustu (V10) í landi Helgafells.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.