Fréttir


14.2.2023

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Árborgar vegna stækkunar miðsvæðis M1 í miðbæ Selfoss

Skipulagsstofnun staðfesti 13. febrúar 2023 óverulega breytingu á Aðalskipulagi Árborgar 2020-2036 sem samþykkt var í bæjarstjórn 18. janúar 2023.

Í breytingunni felst 0,1 ha stækkun miðsvæðis M1 vegna áforma um uppbyggingu austan Kirkjuvegar 13.

Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.