Fréttir


  • Borgarhöfn 2-3

7.3.2022

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar vegna Borgarhafnar 2-3

Skipulagsstofnun staðfesti, 4. mars 2022, breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030 sem samþykkt var í bæjarstjórn 10. febrúar 2022.

Í breytingunni felst að 5 ha landbúnaðarlands á jörðinni Borgarhöfn 2-3, Neðribær, er breytt í verslunar- og þjónustusvæði (VÞ45) fyrir ferðaþjónusta og gistingu ásamt tjaldsvæði.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.