Fréttir


  • Hafnarnes

30.9.2020

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar vegna Hafnarness

Skipulagsstofnun staðfesti, 29. september 2020, óverulega breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030 sem samþykkt var í bæjarstjórn 10. september 2020.

Í breytingunni felst að svæði fyrir verslun og þjónustu á Hafnarnesi stækkar úr 750 m2 í 3000 m2 en skipulagsákvæði um uppbyggingu eru óbreytt.

Málsmeðferð var óveruleg breyting á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.