Fréttir


  • Skinney

12.5.2020

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjörður vegna efnistöku í Skinney

Skipulagsstofnun staðfesti 12. maí 2020 óverulega breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjörður 2012-2030 sem samþykkt var í sveitarstjórn 16. janúar 2020.

Í breytingunni felst að heimiluð efnistaka í Skinney eykst úr 10.000m3 í 30.000m3

Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

 

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.