Fréttir


  • Yfirlitsmynd af skíðasvæðinu í Bláfjöllum

10.8.2020

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Ölfuss vegna skíðasvæðis í Bláfjöllum

Skipulagsstofnun staðfesti, 6. ágúst 2020, breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Ölfus 2010-2022 sem samþykkt var í sveitarstjórn 27. febrúar 2020.

Í breytingunni felst að 100 ha svæði við sveitarfélagamörk að Kópavogsbæ er breytt í opið svæði til sérstakra nota og verður viðbót við núverandi skíðasvæði í Bláfjöllum.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.