Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Ölfuss vegna stækkunar íbúðarbyggðar í Vesturbyggð, Þorlákshöfn
Skipulagsstofnun staðfesti 12. september 2024 óverulega breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Ölfuss 2020-2036 sem samþykkt var í bæjarstjórn 29. febrúar 2024.
Í breytingunni felst að samfélagsþjónusta S5 er minnkuð úr 3 ha í 1,4 ha en aðliggjandi íbúðarbyggð ÍB9 og ÍB12 stækka sem því nemur.
Málsmeðferð var óveruleg breyting á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.