Fréttir


27.1.2020

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Vesturbyggðar

Skipulagsstofnun staðfesti, 23. janúar 2020, breytingu á Aðalskipulagi Vesturbyggðar 2006-2018 sem samþykkt var í bæjarstjórn 11. desember 2019.

Í breytingunni felst að landnotkun er breytt á jörðinni Melanesi á Rauðasandi, úr landbúnaðarsvæði í verslunar- og þjónustusvæði (V11) fyrir ferðaþjónustu og skilgreint er nýtt vatnsból.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.