Fréttir


5.7.2018

Staðfesting á breytingu aðalskipulagi aðalskipulagi Fjallabyggðar vegna Aðalgötu og Ólafsvegar í Ólafsfirði

Skipulagsstofnun staðfesti 5. júlí 2018 breytingu á Aðalskipulagi Fjallabyggðar 2008-2028, sem samþykkt var í bæjarráði 26. júní 2018.

Breytingin felst í því að svæði fyrir þjónustustofnanir við Aðalgötu 15 og Ólafsveg 3 í Ólafsfirði er breytt í íbúðarbyggð.

Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.