Fréttir


4.9.2018

Staðfesting á breytingu aðalskipulagi Kópavogs vegna Kópavogsganga og verslunar- og þjónustusvæðis við Dalveg

Skipulagsstofnun staðfesti, 3. september 2018, breytingu á Aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024 sem samþykkt var í bæjarráði 26. júlí 2018.

Í breytingunni felst að Kópavogsgöng eru felld út ásamt því að hluti af opnu svæði, OP-10 við Dalveg, er breytt í verslunar- og þjónustusvæði VÞ-22.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.