Mál í kynningu


24.2.2020

Breikkun Vesturlandsvegar milli Varmhóla og Hvalfjarðarvegar

Mat á umhverfisáhrifum - frummatsskýrsla í kynningu

Kynningartími stendur frá 24. febrúar til 7. apríl 2020

Vegagerðin hefur lagt fram frummatsskýrslu um mat á umhverfisáhrifum ofangreindrar framkvæmdar.

Allir geta kynnt sér frummatsskýrsluna og lagt fram athugasemdir.

Frummatsskýrslan er aðgengileg  hér  ásamt viðaukum, í íþróttahúsi Klébergsskóla, Kjalarnesi, á skrifstofu Reykjavíkurborgar, í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun.

Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 7. apríl 2020 til Skipulagsstofnunar eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.

Kynningarfundur: 
   27. febrúar kl. 16:00 til 18:00
   Klébergsskóla, Kjalarnesi