Mál í kynningu


4.2.2021

Brennsluofn fyrir dýraleifar á Strönd á Rangárvöllum

Mat á umhverfisáhrifum - frummatsskýrsla í kynningu

Kynningartími stendur frá 4. febrúar til 19. mars 2021

Sorpstöð Rangárvallasýslu bs. hefur lagt fram frummatsskýrslu um mat á umhverfisáhrifum ofangreindrar framkvæmdar.

Allir geta kynnt sér frummatsskýrsluna og lagt fram athugasemdir.

Frummatsskýrslan er aðgengileg hér, á skrifstofu Rangárþings ytra og hjá Skipulagsstofnun. 

Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 19. mars 2021 til Skipulagsstofnunar bréfleiðis eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is