Mál í kynningu


7.9.2022

Efnistaka í Seyðishólum, Grímsnes- og Grafningshreppi

Mat á umhverfisáhrifum - umhverfismatsskýrsla í kynningu

Kynningartími umhverfismatsskýrslu er til 20. október 2022

Suðurtak ehf. hefur lagt fram umhverfismatsskýrslu um efnistöku í Seyðishólum, Grímsnes- og Gragningshreppi.

Allir geta kynnt sér umhverfismatsskýrsluna og veitt umsögn um framkvæmdina og umhverfismat hennar.

Umhverfismatsskýrslan er aðgengileg hér auk viðauka 1 og viðauka 2.

Umhverfismatsskýrslan er einnig aðgengileg á skrifstofu Grímsnes- og Grafningshrepps og hjá Skipulagsstofnun í Borgartúni 7b í Reykjavík.

Umsagnir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 20. október 2022 til Skipulagsstofnunar eða með ölvupósti á skipulag@skipulag.is.