Mál í kynningu


15.3.2022

Efnistaka í Seyðishólum, Grímsnes- og Grafningshreppi

Umhverfismat - matsáætlun í kynningu

Umsagnarfrestur er til 19. apríl 2022

Suðurtak ehf. hefur lagt fram matsáætlun til Skipulagsstofnunar vegna umhverfismats efnistöku í Seyðishólum, námu 30b í landi Klausturhóla.

Matsáætlunin er aðgengileg hér.  Allir geta kynnt sér áætlunina og veitt umsögn.

Umsagnir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 19. apríl 2022 til Skipulagsstofnunar bréfleiðis eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.