Mál í kynningu


1.3.2022

Efnistaka úr Skorholtsnámu í Hvalfjarðarsveit

Mat á umhverfisáhrifum - kynning umhverfismatsskýrslu

Umhverfismatsskýrsla er aðgengileg til 12. apríl 2022

BM Vallá ehf. hefur lagt fram umhverfismatsskýrslu um efnistöku úr Skorholtsnámu í Hvalfjarðarsveit.

Allir geta kynnt sér umhverfismatsskýrsluna og veitt umsögn um framkvæmdina og umhverfismat hennar.

Umhverfismatsskýrslan er aðgengileg hér og í Borgartúni 7b í Reykjavík hjá Skipulagsstofnun. 

Umsagnir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 12. apríl 2022 til Skipulagsstofnunar bréfleiðis eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.