Eldisstöð á Röndinni á Kópaskeri, Norðurþingi
Mat á umhverfisáhrifum - kynning á umhverfismatsskýrslu
Umhverfismatsskýrsla er aðgengileg til 11. maí 2022
Rifós hf. hefur lagt fram umhverfismatsskýrslu um eldisstöð á Röndinni á Kópaskeri, Norðurþingi.
Allir geta kynnt sér umhverfismatsskýrsluna og veitt umsögn um framkvæmdina og umhverfismat hennar.
Umhverfismatsskýrslan er aðgengileg hér og á skrifstofu Norðurþings að Ketilsbraut 7-9, 640 Húsavík.
Umsagnir skulu berast skriflega til Skipulagsstofnunar eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is eigi síðar en 11. maí 2022.