Mál í kynningu


7.5.2020

Endurbætur á kísilverksmiðju Stakksbergs í Helguvík

Mat á umhverfisáhrifum - kynning frummatsskýrslu

Frestur til að skila athugasemdum er til 26. júní 2020.

Stakksberg hefur tilkynnt til umfjöllunar Skipulagsstofnunar frummatsskýrslu um endurbætur á kísilverksmiðju Stakksberg í Helguvík, Reykjanesbæ.

Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar frá 8. maí 2020 til 26. júní 2020 á eftirtöldum stöðum: Á bæjarskrifstofu Reykjanesbæjar, í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun. 

Frummatsskýrslan er aðgengileg hér.

Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdina og leggja fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 26. júní 2020 til Skipulagsstofnunar bréfleiðis eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.