Mál í kynningu


4.1.2017

Hálendismiðstöðin í Kerlingarfjöllum

Mat á umhverfisáhrifum - tillaga að matsáætlun í kynningu

Kyninngartími stendur frá 4. janúar til 20. janúar 2017

Mannvit verkfræðistofa, f.h Fannborgar, hefur lagt fram tillögu að matsáætlun vegna mats á umhverfisáhrifum hálendismiðstöðvar í Kerlingarfjöllum

Tillagan er aðgengileg hér og hjá Skipulagsstofnun. Allir geta kynnt sér tillöguna og lagt fram athugasemdir

Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 20. janúar 2017 til Skipulagsstofnunar bréfleiðis eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is