Mál í kynningu


10.2.2015

Efnistaka úr Hörgá í Hörgársveit

Mat á umhverfisáhrifum - frummatsskýrsla í kynningu

Kynningartími stendur frá 12. febrúar til 26. mars 2015

Hörgá sf. hefur tilkynnt til umfjöllunar Skipulagsstofnunar frummatsskýrslu um efnistöku í Hörgá í Hörgársveit.

Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar frá 12. febrúar til 26. mars 2015 á eftirtöldum stöðum: Skrifstofu Hörgársveitar í Þelamerkurskóla, í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun. 

Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdina og leggja fram athugasemdir.  Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 26. mars 2015 til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166, 150 Reykjavík.  Þar fást ennfremur nánari upplýsingar um mat á umhverfisáhrifum.

Hér má skoða frummatsskýrsluna.