Mál í kynningu


14.4.2015

Aukin framleiðsla Arnarlax á laxi í Arnarfirði um 7.000 tonn

Mat á umhverfisáhrifum - athugun Skipulagsstofnunar

Kynningartími stendur frá 14. apríl til 26. maí 2015

Arnarlax ehf. hefur tilkynnt til umfjöllunar Skipulagsstofnunar frummatsskýrslu um aukna framleiðslu á laxi í Arnarfirði um 7.000 tonn á ári.

Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar frá 14. apríl til 26. maí 2015 á eftirtöldum stöðum: Á skrifstofum Ísafjarðarbæjar og Vesturbyggðar, Bókasafni Bílddælinga, í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun  

Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdina og leggja fram athugasemdir.  Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 26. maí 2015 til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166, 105 Reykjavík.  Þar fást ennfremur nánari upplýsingar um mat á umhverfisáhrifum.

Hér má skoða frummatsskýrsluna.