Mál í kynningu


3.11.2015

Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Biskupstungnahrepps í Bláskógabyggð, Einiholt, svæði fyrir verslun og þjónustu

  • Breytingartillaga

Athugasemdafrestur er til 4. desember 2015

Sveitarstjórn Bláskógabyggðar hefur auglýst tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Biskupstungnahrepps 2000-2012 vegna stækkunar á verslunar- og þjónustusvæði í landi Einiholts 1.

Tillaga að deiliskipulagi svæðisins er auglýst samhliða aðalskipulagsbreytingunni.

Tillagan er til sýnis til 4. desember á skrifstofu skipulagsfulltrúa, Dalbraut 12, Laugarvatni, á http://www.sbf.is/ og hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík.
Athugasemdir þurfa að berast á skrifstofu skipulagsfulltrúa eða á petur@sudurland.is eigi síðar en 4. desember 2015.