Mál í kynningu


9.6.2010

Kröfluvirkjun II, Þeistareykjavirkjun, háspennulínur frá Kröflu og Þeistareykjum að Bakka, álver á Bakka

Mat á umhverfisáhrifum - athugun Skipulagsstofnunar

  • Alverbakka

Tillögur að neðangreindum framkvæmdum og skýrslur um mat á umhverfisáhrifum liggja frammi til kynningar frá 30. apríl til 14. júní 2010

Neðangreindar frummatsskýrslur eru samtímis í kynningu:
1.    Kröfluvirkjun II allt að 150 MWe jarðhitavirkjun, Skútustaðahreppi
2.    Þeistareykjavirkjun allt að 200 MWe jarðhitavirkjun, Þingeyjarsveit og Norðurþingi
3.    Háspennulínur frá Kröflu og Þeistareykjum að Bakka við Húsavík, jarðstrengur frá Bjarnarflagi að Kröflu, Skútustaðahreppi, Þingeyjarsveit og Norðurþingi
4.    Álver Alcoa á Bakka við Húsavík, Norðuþingi, ársframleiðsla allt  að 346.000 tonn
5.    Sameiginlegt mat framkvæmda 1-4.
 
Landsvirkjun, Þeistareykir ehf., Landsnet og Alcoa hafa tilkynnt til athugunar Skipulagsstofnunar frummatsskýrslur um Kröfluvirkjun II, Þeistareykjavirkjun, Háspennulínur frá Kröflu og Þeistareykjum að Bakka, álver á Bakka og sameiginlegt mat þessara framkvæmda.
Tillögur að ofangreindum framkvæmdum og skýrslur um mat á umhverfisáhrifum liggja frammi til kynningar frá 30. apríl til 14. júní 2010 á eftirtöldum stöðum:
Á skrifstofum Skútustaðahrepps og Þingeyjarsveitar, í stjórnsýsluhúsi Norðurþings á  Húsavík og bókasafni Húsavíkur, í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun.  
Frummatsskýrslurnar eru aðgengilegar á heimasíðum Landsnets: www.landsnet.is og Mannvits: www.mannvit.is.

Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdirnar og leggja fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 14. júní 2010 til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166, 150 Reykjavík.  Þar fást ennfremur nánari upplýsingar um mat á umhverfisáhrifum.
Birt samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum, nr. 106/2000 m.s.b.
                    Skipulagsstofnun