Mál í kynningu


23.6.2010

Auglýsing um skipulag í Rangárvallasýslu - Ásahreppur, Rangárþing eystra og Rangárþing ytra

Auglýsing um skipulag í Rangárvallasýslu - Ásahreppur, Rangárþing eystra og Rangárþing ytra

Hreppsnefnd Ásahrepps auglýsir hér með tillögu að aðalskipulagi Ásahrepps 2010-2022 samkvæmt 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73-1997 með síðari breytingum.

Hreppsnefnd Ásahrepps auglýsir hér með tillögu að aðalskipulagi Ásahrepps 2010-2022 samkvæmt 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73-1997 með síðari breytingum.
Aðalskipulagstillagan tekur til alls lands innan sveitarfélagamarka og er birt á uppdráttum og í greinargerð.  Skipulagstillagan ásamt umhverfisskýrslu og öðrum gögnum eru til sýnis frá 23. júní til og með 3. ágúst. n.k. á eftirfarandi stöðum: Skrifstofu Ásahrepps, Laugalandi, Hellu, skipulagsfulltrúaembætti Rangárþings bs. Ormsvelli 1, Hvolsvelli, Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík.
Öll ofangreind gögn má ennfremur nálgast á heimasíðu sveitarfélagsins:   http://www.asahreppur.is

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera skriflegar athugasemdir við skipulagstillöguna. Athugasemdafrestur er til kl 16:00, þriðjudaginn 3. ágúst  2010. Athugasemdum ef einhverjar eru, skal skila skriflega á skrifstofu byggingar- og skipulagsfulltrúa að Ormsvelli 1,  860 Hvolsvelli. Netföng hjá skipulags- og byggingarfulltrúa: runar@hvolsvollur.is og byggingarfulltrui@rang.is.

F.h. hreppsnefndar Ásahrepps.
Hvolsvell, 23. júní 2010.
Rúnar Guðmundsson
skipulags- og byggingarfulltrúi Rangárþings bs.