Jarðhitanýting við Gráuhnúka vegna Hellisheiðarvirkjunar
Mat á umhverfisáhrifum jarðvarmavinnslu
Kynningartími frummatsskýrslu stendur til 10. maí 2011
Orkuveita Reykjavíkur hefur tilkynnt til athugunar Skipulagsstofnunar frummatsskýrslu um jarðhitanýtingu við Gráuhnúka, vegna Hellisheiðarvirkjunar í Sveitarfélaginu Ölfusi.
Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar frá 28. mars til 10. maí 2011 á eftirtöldum stöðum: Á skrifstofu Sveitarfélagsins Ölfuss, Bæjarbókasafni Ölfusss, í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun. Frummatsskýrslan er aðgengileg á hér.
Opinn kynningarfundur verður í húsi Orkuveitunnar, Bæjarhálsi 1, þann 14. apríl kl. 16:30 til 18:30.
Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdina og leggja fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 10. maí 2011 til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Þar fást ennfremur nánari upplýsingar um mat á umhverfisáhrifum.
Birt samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum, nr. 106/2000 m.s.b.
Skipulagsstofnun