Framleiðsla kísils í Helguvík
Kynning tillögu matsáætlunar
United Silicon Iceland hefur lagt fram tillögu að matsáætlun vegna framleiðslu allt að 100.000 tonna framleiðslu af hrákísli á ári.
Allir geta kynnt sér tillöguna og gert athugasemdir við hana. Athugasemdir við tillöguna skulu vera skriflegar og berast Skipulagsstofnun, Laugavegi 166 150 Reykjavík, eigi síðar en 28. september 2012. Athugasemdir má einnig senda á netfangið sigurdur@skipulagsstofnun.is. Tillaga að matsáætlun er aðgengileg hér.
Skipulagsstofnun