Mál í kynningu


10.1.2014

Rannsóknarboranir í Eldvörpum

Mat á umhverfisáhrifum - Athugun Skipulagsstofnunar

Kynningartími er frá 10. janúar til 24. febrúar 2014

ReykjanesHS Orka hf hefur tilkynnt til athugunar Skipulagsstofnunar frummatsskýrslu um rannsóknarboranir í Eldvörpum í Grindavíkurbæ.

Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar frá 10. janúar til til 24. febrúar 2014 á eftirtöldum stöðum: Á bæjarskrifstofum Grindavíkur og hjá bókasafni Grindavíkur, í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun.  Frummatsskýrslu má skoða hér 


Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdina og leggja fram athugasemdir.  Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 24. febrúar 2014 til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166, 150 Reykjavík.  Þar fást ennfremur nánari upplýsingar um mat á umhverfisáhrifum.