Mál í kynningu


13.6.2014

Virkjanir á veituleið Blönduvirkjunar

Mat á umhverfisáhrifum - athugun Skipulagsstofnunar

Kynningartími stendur frá 13. júní til 25. júlí 2014

Landsvirkjun hefur tilkynnt til umfjöllunar Skipulagsstofnunar frummatsskýrslu um Virkjanir á veituleið Blönduvirkjunar.

Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar frá 13. júní 2014 til 25. júlí 2014 á eftirtöldum stöðum: Á Skrifstofu  Húnavatnshrepps, á Héraðsbókasafni Austur-Húnavatnssýslu, í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun.  Frummatsskýrslu má skoða hér.

Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdina og leggja fram athugasemdir.  Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 25. júlí 2014 til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166, 150 Reykjavík.  Þar fást ennfremur nánari upplýsingar um mat á umhverfisáhrifum.