Mál í kynningu


7.9.2017

Ofanflóðavarnir við Urðargötu, Hóla og Mýrar, Patreksfirði

Mat á umhverfisáhrifum - kynning matsáætlunar

Opið er fyrir athugasemdir við tillögu að matsáætlun til 22. september 2017

Vesturbyggð hefur lagt fram tillögu að matsáætlun vegna áforma um ofanflóðavarnir við Urðargötu, Hóla og Mýrar á Patreksfirði.
Öllum er heimilt að gera athugasemdir við tillöguna. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast Skipulagsstofnun eigi síðar en 22. september 2017. Athugasemdir má senda á netfangið skipulag@skipulag.is
Tillögu að matsáætlun má skoða hér.