Mál í kynningu


2.8.2018

Stækkun fiskeldis Matorku úr 3000 tonnum í 6000 tonn

Mat á umhverfisáhrifum - frummatsskýrsla í kynningu

  • Matorka staðsetning

Matorka ehf. hefur tilkynnt til umfjöllunar Skipulagsstofnunar frummatsskýrslu um stækkun fiskeldis úr 3000 tonnum í 6000 tonn.

Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar frá 3. ágúst 2018 til 17. september 2018 á eftirtöldum stöðum: Á bæjarskrifstofum Grindavíkurbæjar, í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun.

Frummatsskýrslan er aðgengileg hér.

Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdina og leggja fram athugasemdir.  Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 17. september 2018 til Skipulagsstofnunar bréfleiðis eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.