Mál í kynningu


19.4.2022

Tillaga að Aðalskipulagi Skagastrandar 2019-2035

Athugasemdafrestur er til 26. maí 2022

  • ASK Skagastrandar 2019-2022 auglýsing

Sveitarfélagið Skagaströnd hefur auglýst tillögu að aðalskipulagi sveitarfélagsins, þ.e. Aðalskipulag Skagastrandar 2019-2035 samkvæmt 31. gr. skipulagslaga.

Tillagan liggur frammi á skrifstofu sveitarfélagsins að Túnbraut 1-3 og hjá Skipulagsstofnun. Auk þess er hægt að nálgast aðalskipulagsgögn á vefnum www.skagastrond.is

Athugasemdir þurfa að berast á skrifstofu sveitarfélagsins, Túnbraut 1-3, 545 Skagaströnd eða á netfangið skagastrond@skagastrond.is eigi síðar en 26. maí 2022.