Mál í kynningu


13.1.2020

Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar vegna Hóla- og Túnahverfis

Athugasemdafrestur er til 31. janúar 2020

Sveitarstjórn hefur auglýst tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020, vegna stækkunar íbúðarsvæðis 312-Íb og fjölgun íbúða í Hóla- og Túnahverfi.

Tillagan er til sýnis í ráðhúsi Dalvíkurbyggðar, á heimasíðu sveitarfélagsins www.dalvikurbyggd.is og hjá Skipulagsstofnun.

Athugasemdir þurfa að berast á skrifstofu Dalvíkurbyggðar, Ráðhúsi, 620 Dalvík eða með tölvupósti á borkur@dalvikurbyggd.is eigi síðar en 31. janúar 2020.