Mál í kynningu


19.4.2023

Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Flóahrepps, vegna verslunar og þjónustu í landi Lækjarholts 1

Athugasemdafrestur er til 18. maí 2023

Sveitarstjórn hefur auglýst tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Flóahrepps 2017-2029 sem felst í skilgreiningu tæplega 4 ha verslunar- og þjónustusvæðis VÞ24 í landi Lækjarholts 1 vegna áforma um ferðaþjónustu á svæðinu.

Skipulagsgögn eru til sýnis á vef Umhverfis- og tæknisviðs Uppsveita www.utu.is.

Athugasemdir þurfa að berast á skrifstofu UTU Dalbraut 12, Laugarvatni eða með tölvupósti á netfangið skipulag@utu.is, eigi síðar en 18. maí 2023.