Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna búsetukjarna við Brekkuás
Athugasemdafrestur er til 18. júní 2021
Bæjarstjórn hefur auglýst tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 vegna íbúðarbyggðar við Brekkuás 2.
Tillagan er aðgengileg á vef Garðabæjar, www.gardabaer.is, í þjónustuveri Garðabæjar, Garðatorgi 7 og hjá Skipulagsstofnun.
Athugasemdir þurfa að berast á netfangið skipulag@gardabaer.is eða á bæjarskrifstofu Garðabæjar, Garðatorgi 7, 210 Garðabæ eigi síðar en 18. júní 2021.