Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar vegna Fornubúða 5
Athugasemdafrestur er til 4. desember 2018
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar hefur auglýst lagfærða tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 vegna Fornubúða 5. Samhliða er auglýst breyting á deiliskipulagi Suðurhafnarinnar vegna Fornubúða 5.
Tillögurnar eru til kynningar í þjónustuveri Hafnarfjarðarbæjar, Strandgötu 6 og hjá umhverfis- og skipulagsþjónustu, Norðurhellu 2, á vef sveitarfélagsins www.hafnarfjordur.is og hjá Skipulagsstofnun.
Athugasemdir þurfa að berast til umhverfis- og skipulagsþjónustu Hafnarfjarðarbæjar, Norðurhellu 2, eigi síðar en 4. desember 2018.